
Sýningar eru föstudaga og laugardaga kl. 20:00
3. sýning: 27. febrúar – nokkur sæti laus
4. sýning: 28. febrúar – laus sæti
5. sýning: 6. mars – laus sæti
6. sýning: 7. mars – laus sæti
7. sýning: 13. mars – laus sæti
8. sýning: 14. mars – laus sæti
Við minnum á að hægt er að panta miða hér á netinu með því að smella á “panta miða” annað hvort á flipanum hér að ofan eða hægra megin á síðunni.
Fleiri myndir úr leiksýningunni Vínland má sjá undir “Myndir” hægra megin á síðunni.
ROKKSÖNGLEIKURINN VÍNLAND!
Virkilega góð sýning!
Tónlistin góð og textarnir mjög skemmtilegir, Kannski ekki fyrir viðkvæma Ameríkana.
Allir leikarar eru að standa sig með einstakri prýði, bara mjög vel, þegar tekið er tillit til þess að margir af þeim eru að stíga sín fyrstu skref á sviði. Sviðsmyndin er stórkostleg, og búningarnir meiriháttar. og er ljóst að mikið fjármagn og vinna hafa farið í undirbúning fyrir þetta verk.
Vona að ekki komi til þess að Freyvangsleikhúsið þurfi að sýna Dýrin í Hálsaskógi næstu árin.
Þess vegna ættum við Eyfirðingar góðir að sína sóma okkar í því að mæta og sjá verkið sem er jú 100% Eyfirskt.
Ef þú, já ég er að tala við þig, kemur að sjá þetta verk þá stuðlar þú að áframhaldandi áhugamannaleiklist í Eyjafirði.
Það er sko alveg þess virði að sjá þetta verk.
P.S. Mér finnst nú reyndar að allir landsmenn ættu að slá til,
skreppa á norðurland eyða helginni inn á milli fagurra fjalla, í rómantískum rjóðrum dalanna eða í kvöldroðanum við pollinn.
Þar er alltaf jafn fallegt hvort sem er að vetri eða sumri. “Sjá Vínland í Freyvangi” Sjáumst í Eyjafirði!!