Gamanleikurinn Tom, Dick og Harry verður frumsýndur þann 20.febrúar næstkomandi. Verkið er eftir breska gamanleik höfundinn Ray Cooney og son hans Michael Cooney.
Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni.
Bræður Toms þeir Dick og Harry eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfan sig og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin. Því má segja að það fari kannski ekki allt sem skyldi og flækjast málin fyrir Lindu og þá kannski ekki síst fyrir Tom
Gamanleikurinn er í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar og er hann Freyvangsleikhúsinu vel kunnugur þar sem þetta er fimmta verkið sem hann leikstýrir hjá okkur.