Freyvangsleikhúsið frumsýnir á Íslandi farsann ‘Þorskur á þurru landi’
Þorskur á þurru landi er farsi frá árinu 2005, skrifaður af þeim Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman sem heitir Off the Hook á frummálinu.
Verkið gerist á mæðradaginn árið 1958.
Sir Evelyn Carstairs, breski sendiherrann við Sameinuðu þjóðirnar, hefur eytt kvöldinu áður í að þjóra með Dag Hammarskjöld, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, á kránni Bælda Bælið í New Jersey. Þar kynnist hann hinni fögru Angie Puglese og endar á að skutla henni heim á bíl sem hann hafði fengið lánaðan hjá kokkinum sínum.
En gamanið kárnar þegar Bill Puglese, afbrýðisamur eiginmaður Angie og þekktur glæpaforingi, birtist í sendiráðinu eftir að hafa rakið bílnúmerið til kokks sendiherrans.
Þennan sama dag kemur íslenskur sendiráðunautur í sendiráðið til að hefja samningaumræður varðandi íslensku landhelgina.
Í framhaldinu upphefjast mikil ærsl og misskilningur sem m.a. veita nýja sýn á upphaf Þorskastríðsins 1958 – 1961.
Frumsýning verður fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00
Miðaverði er stillt í hóf og er miðinn á aðeins 2.800 kr.
Hægt er að panta miða í síma 857-5598 alla daga á milli kl. 17-19, hér á heimasíðunni og í gegnum skilaboð á Facebook síðu okkar.
Loaka sýningar.
Nú fer Emil og Kattholts gengið að kveðja Freyvangsleikhúsið.
35. sýn. lau. 18. jan. kl. 14. Síðasta sýning
36. sýn. lau. 18. jan. kl. 17. ALLRA SÍÐASTA SÝNING (AUKASÝNING)
Loka sýningar.
Emil í Kattholti er að renna sitt skeið. Ef þú ert hefur ekki enþá tekið upp tólið og pantað miða hefur þú ekki marga daga til þess.
Hringdu í síma 857-5598 og pantaðu miða.
Samlestur!
Samlestur/prufur á nýjum farsa sem Freyvangsleikhúsið frumsýnir á Íslandi.
Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í þessu verkefni endilega kíkja í Freyvang 18. og 19. nóv kl. 20.
Næstu sýningar á Emil í Kattholti.
12. sýn. lau. 16. nóv. kl. 14, UPPSELT
13. sýn. lau. 16. nóv. kl. 17, UPPSELT
14. sýn. sun. 17. nóv. kl. 14, UPPSELT
15. sýn. sun. 17. nóv. kl. 17, UPPSELT
16. sýn. lau. 23. nóv. kl. 14, UPPSELT
17. sýn. lau. 23. nóv. kl. 17, AUKASÝNING UPPSELT
18. sýn. sun. 24. nóv. kl. 14, UPPSELT
19. sýn. lau. 30. nóv. kl. 14, UPPSELT
20. sýn. lau. 30. nóv. kl. 17, AUKASÝNING
21. sýn. sun. 1. des. kl. 14, UPPSELT
22. sýn. lau. 7. des. kl. 14, UPPSELT
23. sýn. sun. 8. des. kl. 14, UPPSLET
24. sýn. lau. 14. des. kl. 14
25. sýn. sun. 15. des. kl. 14
26. sýn. lau. 28. des. kl. 14
27. sýn. sun. 29. des. kl. 14
Miðasala í síma: 857-5598
kl. 17-19 alla virka daga
10-13 sýningardaga




