Freyvangsleikhúsið frumsýnir á Íslandi farsann ‘Þorskur á þurru landi’

Þorskur1Þorskur á þurru landi er farsi frá árinu 2005, skrifaður af þeim Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman sem heitir  Off the Hook á frummálinu.

Verkið gerist á mæðradaginn árið 1958.

Sir Evelyn Carstairs, breski sendiherrann við Sameinuðu þjóðirnar, hefur eytt kvöldinu áður í að þjóra með Dag Hammarskjöld, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, á kránni Bælda Bælið í New Jersey. Þar kynnist hann hinni fögru Angie Puglese og endar á að skutla henni heim á bíl sem hann hafði fengið lánaðan hjá kokkinum sínum.

En gamanið kárnar þegar Bill Puglese, afbrýðisamur eiginmaður Angie og þekktur glæpaforingi, birtist í sendiráðinu eftir að hafa rakið bílnúmerið til kokks sendiherrans.

Þennan sama dag kemur íslenskur sendiráðunautur í sendiráðið til að hefja samningaumræður varðandi íslensku landhelgina.

Í framhaldinu upphefjast mikil ærsl og misskilningur sem m.a. veita nýja sýn á upphaf Þorskastríðsins 1958 – 1961.

Frumsýning verður fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00

Miðaverði er stillt í hóf og er miðinn á aðeins 2.800 kr.

Hægt er að panta miða í síma 857-5598 alla daga á milli kl. 17-19, hér á heimasíðunni og í gegnum skilaboð á Facebook síðu okkar.

Loka sýningar.

Emil í Kattholti er að renna sitt skeið. Ef þú ert hefur ekki enþá tekið upp tólið og pantað miða hefur þú ekki marga daga til þess.

Hringdu í síma 857-5598 og pantaðu miða.

Samlestur!

Samlestur/prufur á nýjum farsa sem Freyvangsleikhúsið frumsýnir á Íslandi.

Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í þessu verkefni endilega kíkja í Freyvang 18. og 19. nóv kl. 20.