Lokafrestur til að skrá sig í leikprufur fyrir hlutverk Emils og Ídu er fimmtudagskvöldið 22. ágúst. Fyrsti samlestur verður þriðjudagskvöldið 27. ágúst kl. 20:00.
Emil í Kattholti
Fyrsta verkefni Freyvangsleikhússins á þessu leikári verður barnaleikritið Emil í Kattholti, eftir sögum Astrid Lindgren. Um er að ræða nýja leikgerð sem aldrei hefur verið sett upp áður á Íslandi. Þýðandi leikgerðarinnar er hinn góðkunni Guðjón Ólafsson og leikstjóri hin þrautreynda Saga Jónsdóttir.
Áheyrnarprufur fyrir aðalhlutverkin (Emil og Ídu) verða í Freyvangi laugardaginn 24. ágúst frá kl. 13:00 og sunnudaginn 25.ágúst á sama tíma. Emil þarf að vera á aldrinum 11-12 ára og Ída 7-9 ára. Við leitum að krökkum sem finnst gaman að leika og syngja og eru reiðubúin að eyða miklum tíma í Freyvangi. FORELDRAR ERU BEÐNIR UM AÐ FYLGJA BÖRNUM SÍNUM Í ÁHEYRNARPRUFUR.
Skráning í prufur er á facebook.com/freyvangur og þar skal taka fram nafn og aldur og símanúmer foreldris.
Dagatalsdömurnar – síðustu sýningar
Nú er hægt að telja þær sýningar sem eftir eru á þremur fingrum annarar handar. Það eru sumsé aðeins þrjár sýningar eftir og næsta sýning verður laugardagskvöldið 6. apríl. Þessi uppfærslaFreyvangsleikhússins hefur bara fengið frábærar viðtökur áhorfenda og frábæra dóma gagnrýnenda. En nú fer hver að verða síðastur. Miðapantanir á freyvangur.net og í síma 8575598.![dagatalsdomurnar_01[1]](https://freyvangur.is/wp-content/uploads/2013/01/dagatalsdomurnar_011.jpg?w=1080)
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Dagatalsdömurnar slá í gegn!
Gamanleikurinn um Dagatalsdömurnar hefur heldur betur fengið góð viðbrögð hjá áhorfendum og sýningar halda áfram af fullum krafti. Um næstu helgi verða 3 sýningar, föstudagskvöld kl. 20:00 (örfá sæti laus, laugardag kl 16:00 (aukasýning, uppselt) og laugardagskvöld kl 20:00 (örfá sæti laus). Miðapantanir í síma 8575598 og á freyvangur.net


