Hinn árlegi kabarett Freyvangsleikhússins, sem að þessu sinni heitir „Jólahlaðborð“, verður sýndur í Freyvangi föstudagskvöldið 30. nóvember kl. 20:30 og laugardagskvöldið 1. desember kl. 21:30. Á föstudagskvöldið verður boðið upp léttar veitingar, en á laugardagskvöldið verður hefðbundinn kabarett, sem lýkur með dansleik. Þessi árlega skemmtun hefur markað sér sess í menningarlífi Eyfirðinga og óhætt að hvetja fólk til þess að fjölmenna í Freyvang.