Hvað heitir þú? Guðjón Ólafsson
Hvað ertu gamall/gömul? 64
Hvað fékkstu þér í morgunmat? Ristað brauð og te
Hvern leikur þú í leikritinu Blúndur og blásýra? Rooney varðstjóra
Hvað finnst þér skemmtilegast við karakterinn þinn? Hvað hann á margt sameiginlegt með Adam nokkrum Hoskins.
Hefurðu einhvern leyndan hæfileika, og hver er hann? Allir mínir hæfileikar eru augljósir.

Hvað hefur þú stundað leiklist lengi? frá 1983
Hefurðu starfað með Freyvangsleikhúsinu áður? Já
Hvað fékk þig til að fara út í leiklist? Mig vantaði eitthvað að gera og Litla Leikklúbbinn vantaði leikara.
Hvað viltu verða þegar þú verður „stór“? Eftirlaunaþegi
Hvað keyptirðu fyrir peningana sem Frúin í Hamborg gaf þér? Flugmódel
Og að lokum…. Af öllum mótleikurum þínum, hver heldurðu að hafi stolið kökunni úr krúsinni í gær? Daði
Miðasala fyrir Blúndur og blásýru í Freyvangi er opin!
Hægt er að panta miða á tix.is og í síma 857-5598 kl. 14-17 alla virka daga.