Skilaboðaskjóðan verður frumsýnd 6. október kl. 14:00 og verður síðan sýnd alla laugardaga og sunnudaga kl 14:00. Miðapantanir eru í síma 8675598 og á freyvangur.net
Skilaboðaskjóðan frumsýnd 6. október
Skilaboðaskjóðan, barnaleikrit með söngvum, verður frumsýnt í Freyvangi laugardaginn 6. október n.k. Leikstjóri er Daníel Freyr Jónsson og tónlistarstjórar þau Brynjólfur Brynjólfsson og Sigríður Hulda Arnardóttir. Æfingar standa nú yfir og ganga samkvæmt áætlun.
Bætt aðstaða fyrir fatlaða

Undanfarið hefur verið unnið að því að setja upp hjólastólaramp við Freyvang sem nú er tilbúinn, en áður var búið að útbúa sérstaka salernisaðstöðu fyrir fatlaða.
Aðgengi fatlaðra að húsnæðinu er því orðið mun betra en áður var og við bjóðum alla áhugasama leikhúsgesti velkomna í Freyvangsleikhúsið og gerum okkar besta til að allir fái notið upplifunarinnar eins og best verður kosið.
Samlestur fyrir Skilaboðaskjóðuna

Barnaleikritið Skilaboðaskjóðan hjá Freyvangsleikhúsinu.
Samlestur fyrir Skilaboðaskjóðuna verður í Freyvangi mánudaginn 20. ágúst og þriðjudaginn 21. ágúst kl. 20:00.
Fólk á öllum aldri er velkomið. Söngfólk sérstaklega velkomið.
Stefnt er að frumsýningu á Skilaboðaskjóðunni laugardaginn 6. október.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Áhugavert leikár framundan

Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína til Himnaríkis og sérstaklega þökkum við allar þær hlýju kveðjur sem okkur bárust.
Nú þegar er undirbúningur næsta leikárs hafinn og í ágúst verður lagt af stað með æfingar fyrir haustverkefnið. Að venju breytum við til og að þessu sinni er ætlunin að setja upp metnaðarfullt barnaleikrit með söngvum sem allir ættu að kannast við.
Þetta verður í fjórða sinn sem Freyvangsleikhúsið ræðst í haustverkefni og alltaf hefur verið reynt að fara nýjar leiðir. Fyrst var ráðist í að setja upp Memento mori, framúrstefnulegt verk með heimspekilegum vangaveltum. Annað haustverkefnið var Bannað börnum, frumsaminn gamanleikur sem sótti innblástur sinn í íslenskar þjóðsögur og í fyrra var það Nývirki, níu stuttverk eftir félaga í Freyvangsleikhúsinu. Það er von okkar að næsta haustverkefni eigi ekki síður, og jafnvel enn frekar, eftir að vekja athygli og áhuga áhorfenda.
Freyvangsleikhúsinu hefur einnig tekist að tryggja sér, fyrst íslenskra leikhúsa, sýningarrétt á Íslandi að þekktu bresku leikriti sem slegið hefur í gegn á West End og víðar í hinum enskumælandi heimi og var m.a. valið besta gamanleikritið á Bretlandi árið 2010. Þetta þekkta verk verður vorverkefni Freyvangsleikhússins og verður nánar kynnt þegar líður á haustið, en auk þess að vera þekktur gamanleikur tekur það á alvarlegu málefni og má nefna að sýningargjöld og höfundalaun af sýningunum munu renna til krabbameinsrannsókna.
Uppselt á lokasýninguna
Við hjá Freyvangsleikhúsinu þökkum kærlega þær góðu viðtökur sem Himnaríki – geðklofinn gamanleikur hefur hlotið. Þessar góðu móttökur hafa meðal annars leitt til þess að uppselt er orðið á lokasýninguna á morgun.



