Dömudagatalið

Fyrsti samlestur á Dömudagatalinu eftir Tim Firth, í íslenskri þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar, verður fimmtudagskvöldið 1. nóvember kl. 20:00 í Freyvangi.  Annar samlestur verður föstudagskvöld 2.nóvember kl. 20:00.  Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.  Í leikritinu eru mörg bitastæð hlutverk fyrir konur á aldrinum 30-60 ára.  Allar nánari upplýsingar gefur Ingólfur í síma 8408865.

Skilaboðaskjóðan

Vegna auglýsingar á forsíðu N4 dagskrárinnar er rétt að taka fram að atriði úr Skilaboðaskjóðunni verður ekki sýnt á Glerártorgi á laugardaginn kl. 14:30, við verðum nefnilega að sýna í Freyvangi á sama tíma.  Við biðjum aðdáendur okkar afsökunar á þessum mistökum, (sem eru ekki okkar) og hvetjum þá til að koma í Freyvang og sjá okkur þar.

Skilaboðaskjóðan.

Sýningar á Skilaboðaskjóðunni um næstu helgi:

Laugardag  20. október kl.14:00      örfá sæti laus

Sunnudag  21 október   kl. 14:00      uppselt

Sunnudag  21 október   kl.  17:00

Miðapantanir í síma 8575598 og á freyvangur.net

Skilaboðaskjóðan verður aðeins sýnd í október og nóvember.

Kabarettfundur.

Fyrsti kabarettfundur vetrarins verður haldinn í Freyvangi á miðvikudagskvöldið, 10. október, kl 20:00.  Við hvetjum sem flesta til þess að mæta, hvort sem þeir hafa áhuga á söng, dansi eða leik.  Ekki er verra ef einhver lumar á skáldhæfileikum eða þekkir allt slúðrið úr Eyjajarðarsveit og næsta nágrenni.  Sýningar á kabarett eru fyrirhugaðar fyrstu helgina í nóvember og verða nánar auglýstar síðar.  Sjáumst hress á miðvikudagskvöldið.

Skilaboðaskjóðan

Frumsýning á Skilaboðaskjóðunni er á morgun, laugardag.  Svo verða sýningar alla laugar- og sunnudaga í október og nóvember.  Miðaverð aðeins 2000 og miðapantanir í síma 8575598 eða á freyvangur.net.  Að lokinni sýningu er gestum boðið að koma upp á svið, skoða sig um í Ævintýraskóginum hitta uppáhalds ævintýrapersónurnar sínar og láta taka af sér mynd með þeim.

RÉTT SÍMAÚMER!!!!!!  8575598   Vegna mistaka var gefið upp rangt símanúmer fyrir miðasölu.  RÉTT NÚMER ER 8575598.  Freyvangsleikhúsið biðst velvirðingar á þessum mistökum.