Miðaverði á Skilaboðaskjóðuna er stillt mjög í hóf. Almennt verð er 2000 kr og verð fyrir hópa, 10 manns eða fleiri, er 1800.
Skilaboðaskjóðan frumsýnd 6. október
Skilaboðaskjóðan, barnaleikrit með söngvum, verður frumsýnt í Freyvangi laugardaginn 6. október n.k. Leikstjóri er Daníel Freyr Jónsson og tónlistarstjórar þau Brynjólfur Brynjólfsson og Sigríður Hulda Arnardóttir. Æfingar standa nú yfir og ganga samkvæmt áætlun.
Uppselt á lokasýninguna
Við hjá Freyvangsleikhúsinu þökkum kærlega þær góðu viðtökur sem Himnaríki – geðklofinn gamanleikur hefur hlotið. Þessar góðu móttökur hafa meðal annars leitt til þess að uppselt er orðið á lokasýninguna á morgun.
Frumsýning nálgast á Himnaríki

Nú nálgast frumsýning á Himnaríki hér í Freyvangsleikhúsinu, 17. febrúar nánar tiltekið. Í tilefni af því birtum við tilkynningu á leiklist.is
Æfingar á aðalverkefni Freyvangsleikhússin, Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, hófust strax eftir áramót en frumsýnt verður 17. febrúar n.k. Verkið var fyrst sett upp hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu 1995 og naut strax mikilla vinsælda, en þess má geta að Leikfélag Ölfuss setti verkið upp nú á haustdögum við góðar undirtektir.
Höfundur verksins er Árni Ibsen sem er vel þekktur fyrir ýmis leikrit, s.s. Skjaldabakan kemst þangað líka, Afsakið! Hlé og Fiskar á þurru landi. Árni hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín og þýðingar um ævina en hann lést 21. ágúst 2007, 59 ára gamall. Leikstjóri uppsetningarinnar er Jón Gunnar Þórðarson sem er að góðu kunnur fyrir leikstjórn bæði hjá áhugaleikfélögum og atvinnuleikhúsum en hann hefur m.a. leikstýrt Með fullri reisn hjá Leikfélagi Hörgdæla og Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar.
Með hlutverk fara Brynjar Gauti Schiöth sem sló rækilega í gegn í Svejk, Hildur Axelsdóttir sem fyrst sló í gegn sem Ronja ræningjadóttir, Inga María Ellertsdóttir sem sló í gegn í Rocky Horror, Jóhann Axel Ingólfsson sem sló eftirminnilega í gegn sem asninn í Kardimommubænum, Ólöf Huld Matthíasdóttir sem slær í gegn hvar sem hún kemur og Steingrímur Magnússon sem hefur slegið í gegn bæði sem Borkaræningi og indíáni, auk þess að slá í gegn í Svejk.
Leikritið gerist í sumarbústað og er leikið á tveimur sviðum í einu. Búið er að skipta stóra salnum í Freyvangi upp í tvo minni og skipta áhorfendur um sal í hléi og sjá þannig bæði það sem á sér stað inni í sumarbústaðnum og hitt sem gerist utan dyra.
Tilkynninguna má líka lesa á leiklist.is
Og við byrjum að hita upp fyrir Himnaríki – geðklofinn gamanleik
Himnaríki er meira en bara sumarbústaður á Íslandi:
Freyvangsleikhúsið kynnir Kabarettinn Með fullri lengd!
Föstudagskvöldið 18. nóvember verður hinn árlegi kabarett Freyvangsleikhússins sýndur. Sýningin hefst klukkan 20:30, húsið opnar klukkutíma fyrr. Að venju verður boðið upp á kaffiveitingar með sýningunni. Að sýningu lokinni mun hin stórkostlega hljómsveit, Þuríður Formaður og Hásetarnir stíga á stokk og halda uppi fjörinu fram til klukkan 01:00. Miðaverð er 2000 krónur, kaffiveitingar og gömludansaball innifalið.
Laugardagskvöldið 19. nóvember verður síðan seinni sýningin. Sýningin hefst 21:00, húsið opnar klukkutíma fyrr. Að sýningu lokinni stígur á stokk Akureyringurinn Rúnar Eff ásamt hljómsveitinni Manhattan og munu þeir félagar spila til klukkan 04:00. Miðaverð er 2500 krónur og er ballið innifalið.
Ætli verði ekki skemmtilegra á kabarett en í afmælinu hjá Elmari á Hríshóli?
Hjörtur á Rifkelsstöðum og Axel í Víðigerði ÆTLA að mæta.
Benjamín á Tjörnum verður með myndavélina á lofti!
Verður gert grín að ÞÉR??? ÞORIRU EKKI að mæta????
P.s: Svertingsstaða-mafían fékk sínu fram, Theodór Ingi er ekki kynnir í ár!
Sýning 15. október fellur niður
Af óviðráðanlegum orsökum fellur sýningin sem átti að vera á morgun 15. október niður. Lokasýning verður n.k. föstudag 21. október.
Svejk í Þjóðleikhúsið!
Nú rétt í þessu var sýningin um Góði Dátinn Svejk valin sem athyglisverðasta áhugaleiksýningin á landinu á þessu leikári. Af því tilefni er Freyvangsleikhúsinu boðið að setja upp sýninguna í Þjóðleikhúsinu í lok maí. Nánari upplýsingar koma inn um leið og þær liggja fyrir.
Við þökkum enn og aftur fyrir okkur.
Hér er smá tilkynning fyrir danskan aðdáanda:
Svejk har blivet valgt som den beste amatør forestilling i Island detta år!

