Bannað börnum

Eins og síðasta vetur ætlar Freyvangsleikhúsið að efna til haustverkefnis í ár. Að þessu sinni er það leikritið Bannað börnum sem sett verður upp.

Bannað börnum er erótísk hryllingskómedía eftir félaga í Freyvangsleikhúsinu. Verkið gerist í nútímanum en sækir innblástur sinn í íslenskar þjóðsögur.
Fyrsti samlestur verður í Freyvangi þriðjudaginn 17. ágúst kl. 20:00. Allir velkomnir.

Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri 10-15. ágúst.

Menningarhúsið Hof

Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakklandi. Frítt er inn á allar sýningar og framlag Freyvangsleikhússins, Vínland, verður lokasýning hátíðarinnar kl. 20:00 13. ágúst í stóra salnum í Hofi. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og verða allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar í Menningarhúsinu Hofi. Alls er reiknað með að um 250 manns taki beinan þátt í hátíðinni.
Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans list

Eigum við að drepa prestinn?

Hátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna, bæði hvað varðar óblíð náttúruöflin og mannlega náttúru; eilífa baráttu við hatur, ástríður, fordóma og svo mætti lengi telja. Alls verða sýndar 12 leiksýningar á hátíðinni, þar af þrjár íslenskar. Það eru Umbúðalaust frá Leikfélagi Kópavogs í leikstjórn Vigdísar Jakobsdóttur, Birtingur frá Leikfélagi Selfoss og Vínland frá Freyvangsleikhúsinu, báðar í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar.

Auk leiksýninga verður boðið upp á þrjár leiksmiðjur á meðan á hátíðinni stendur, leiðbeinendur á þeim eru Ágústa Skúladóttir, Bernd Ogrodnik og Rúnar Guðbrandsson. Jafnframt mun hátíðarklúbbur verða starfræktur þar sem þátttakendur á hátíðinni munu skemmta sér og öðrum. Boðið verður uppá gagnrýni á sýningar hátíðarinnar og verða gagnrýnendur Dr. Danute Vaigauskaite frá Háskólanum í Klaipeda, Litháen og Þorgeir Tryggvason, leiklistargagnrýnandi og formaður Bandalags íslenskra leikfélaga.
Bandalag íslenskra leikfélaga skipuleggur leiklistarhátíðina í samvinnu við Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðið (NEATA), Norræna menningarsjóðinn, Menntamálaráðuneytið, Akureyrarbæ og Menningarhúsið Hof.

Lokasýning á Dýrunum í Hálsaskógi

Laugardagur 8 maí síðasta sýning – Örfá sæti laus –

ATH. Takið endilega myndavél með á sýninguna því hægt er að hitta dýrin á eftir sýningu og láta taka myndir með þeim. Biðjum ykkur að taka ekki myndir á meðan sýningu stendur :)

Hægt að að panta miða hér á síðunni eða í síma 857 5598 frá kl.17:00 virka daga og 10:00 um helgar.  Einnig er hægt að kaupa miða í Pennanum/Eymundsson Hafnarstræti Akureyri(á annarri hæð)

ATH. Þeir sem keypt hafa gjafabréf eru ekki með pantað á sýningu. Panta þarf á þá sýningu sem óskað er og taka fram að um gjafabréf sé að ræða.

VELKOMIN Í FREYVANGSLEIKHÚSIÐ

Gestur nr. 3000

Nú um helgina kom 3000. gesturinn að sjá Dýrin í Hálsaskógi. Það var hún Soffía Rut Guðmundsdóttir sem heiðraði Freyvang með nærveru sinni. Freyvangsleikhúsið vill þakka henni og öllum hinum sem hafa komið og séð sýninguna kærlega fyrir.

Hér má sjá Soffíu taka við viðurkenningu frá Halldóri Sigurgeirssyni formanni Freyvangsleikhússins. Með þeim á myndinni eru dætur Soffíu, þær Andrea Rós og Bjarney Lilja og afi þeirra Ólafur Þórðarson.

Dýrin í Hálsaskógi

Sýningatímar:

Laugardagur 24. apríl         kl 14:00         – Laus sæti –

Sunnudagur 25 apríl           kl 14:00          – Laus sæti –

ATH. Takið endilega myndavél með á sýninguna því hægt er að hitta dýrin á eftir sýningu og láta taka myndir með þeim. Biðjum ykkur að taka ekki myndir á meðan sýningu stendur 🙂

Hægt að að panta miða hér á síðunni eða í síma 857 5598 frá kl.17:00 virka daga og 10:00 um helgar.  Einnig er hægt að kaupa miða í Pennanum/Eymundsson Hafnarstræti Akureyri(á annarri hæð)

ATH. Þeir sem keypt hafa gjafabréf eru ekki með pantað á sýningu. Panta þarf á þá sýningu sem óskað er og taka fram að um gjafabréf sé að ræða.

VELKOMIN Í FREYVANGSLEIKHÚSIÐ


Nýjustu fréttir af Dýrunum

Æfingar eru hafnar og stefnt er að því að frumsýna verkið í byrjun febrúar.  Endilega fylgist með bæði hér á heimasíðunni og endilega bætið okkur við sem vin á Facebook, því við erum alltaf í góðu skapi og það er aldrei að vita nema okkur detti í hug að gefa miða á sýninguna þegar fram líða stundir.

Kabarett 2009

Freyvangsleikhúsið og Noise FM kynna kabarettinn

DE-TOX

Hreinsandi og mannbætandi skemmtun!

Sýningar:

Föstudaginn 6. nóvember kl. 20:00. Kabarett, kaffi og með því – kr. 1.500,-

Laugardaginn 7. nóvember kl. 21:30. Kabarett og dansleikur – kr. 2.500,- Hin stórgóða hljómsveit Húsbændur og hjú leika fyrir dansi.

Miðasala við innganginn – Upplýsingar í síma: 857 5598

16 ára aldurstakmark á laugardagskvöld – Húsið opnar kl. 20:00 bæði kvöldin

Samlestrar fyrir Dýrin í Hálsaskógi

dyrinFreyvangsleikhúsið ætlar eftir áramót að setja á svið ,,Dýrin í Hálsaskógi“ eftir Torbjörn Egner og mun Ingunn Jensdóttir leikstýra verkinu. Vegna þessa verða áheyrnar- og textaprufur fyrir börn á aldrinum 8-12 ára (3.-7. bekkur) í Hjartanu í Hrafnagilsskóla sunnudaginn 8. nóvember n.k. Prufurnar hefjast kl. 15:00 og allir áhugasamir velkomnir.

Sambærilegar prufur verða fyrir þá sem eldri eru í Freyvangi mánudaginn 9. nóvember kl. 19:00. Áhugasamir hvattir til að mæta.

Nánari upplýsingar gefur Halldór í 897-6083.