Gjafabréf á Góða Dátann Svejk

Eins og áður hefur komið fram mun Freyvangsleikhúsið frumsýna Góða Dátann Svejk í febrúar á komandi ári.

Svejk við sína uppáhaldsiðju

Leikstjóri er Þór Tulinius.

Leikritið hefur verið sýnt víða um heim síðustu ár og áratugi við miklar vinsældir. Uppfærsla Freyvangsleikhússins mun skarta fjölda leikara sem takast á við mörg og krefjandi hlutverk. Sýningin er full af gleði, glens og líflegri tónlist.

Í tilefni af þessu hefur verið hafin sala á gjafabréfum sem eru tilvalin í jólapakkann í ár. Þau má nálgast í verslun Eymundsson á Akureyri og kosta þau 2500 krónur. Hvert gjafabréf gildir fyrir einn.

 

 

Góði Dátinn Svejk

Við viljum minna á fyrsta samlestur á Góða Dátanum Svejk sem fram fer fimmtudagskvöldið 25. nóvember klukkan 20:00 í Freyvangi.

Svo mun verða eitthvað framhald á föstudagskvöldið og á laugardeginum. Nánari upplýsingar um það annað kvöld.

Svejk við sína uppáhaldsiðju

Allir áhugasamir eru velkomnir.

Góði Dátinn Svejk – fyrsti samlestur

Svejk við sína uppáhaldsiðju

Fyrsti samlestur á Góða Dátanum Svejk, í leikstjórn Þórs Tuliníus, verður í Freyvangi fimmtudaginn 25. nóvember kl.20:00.

Góði dátinn Svejk er gamanleikrit sem hefur verið sýnt víða um heim síðustu ár og áratugi við miklar vinsældir.
Sýningar hefjast í febrúar.
Freyvangsleikhúsið er opið öllum sem hafa áhuga að vinna sjálfboðastarf í þágu leiklistarinnar.

Fylgist nánar með hérna á síðunni, þar sem við setjum tímasetningar og upplýsingar um áframhald.

Loksins loksins Kabarett!!

Kabarettinn “Af mönnum og gæsum” verður sýndur í Freyvangi 5. og 6. nóvember næstkomandi.

Frá Kabarett í fyrra

Föstudagskvöldið 5. nóv. opnar húsið 19:30 og sýningin hefst 20:30. Miðaverð er 1500 kr. og kaffiveitingar eru innifaldar í verðinu.

Laugardagskvöldið 6. nóv. opnar húsið 20:00 og sýningin hefst 21:00 og svo er ekta sveitaball á eftir. Miðaverð er 2500 kr. og aldurstakmark er 16 ára. Hljómsveitin Heykvísl spilar fyrir dansi.

Miðar verða eingöngu seldir við innganginn. Ekki er tekið við miða og borðapöntunum!!

Sýningar á Bannað Börnum

Bannað Börnum er sýnt um helgina. Nú fer hver að verða síðastur að sjá þetta skemmtilega og frumlega verk!

Altt á fullu á Huldusteini

5. sýning 22. október kl. 20:30
6. sýning 23. október kl. 20:30
7. sýning 29. október kl. 20:30
8. sýning 30. október kl. 20:30 – lokasýning
Miðaverð aðeins kr. 2.000,- kr. eða 1.500,- kr. gegn framvísun skólaskírteinis MA, VMA eða HA. Miða er hægt að panta í síma 857 5598 eða hér á heimasíðunni undir flipanum: “Panta miða”.
Á Kistan.is hefur nú birst leikdómur um Bannað börnum. Þar stendur m.a.:
“í Bannað börnum tekst höfundum alveg snilldarvel að tengja gamaldags heim hjátrúar og þjóðsagna við heim nútímamannsins.”
“Texti verksins er mjög fyndinn, bæði hvað varðar heilu atriðin en ekki síður afar húmoríska punkta í miðri dramatíkinni.”
“Leikritið sjálft er alveg fantagott og ekki er ólíklegt að leikararnir sjóist í rullunni þegar fyrstu sýningum er lokið.”

Hægt er að lesa leikdóminn í heild sinni á Kistan.is

Senn líður að Kabarett

Fyrsti fundur vegna komandi Kabaretts verður haldinn í Freyvangi annaðkvöld, 12 október, klukkan 20:00. Allir þeir sem vilja taka þátt í ótrúlega skemmtilegri og gefandi uppákomu eru vinsamlegast beðnir að mæta.

Framundan er góð skemmtun.

Næstu sýningar á Bannað börnum

Altt á fullu á Huldusteini

Laugardagssýningar 9. og 16. október falla niður af óviðráðanlegum orsökum. Næstu sýningar eru:
4. sýning 15. október
5. sýning 22. október
6. sýning 23. október
7. sýning 29. október
8. sýning 30. október – lokasýning
Miðaverð aðeins kr. 2.000,- kr. eða 1.500,- kr. gegn framvísun skólaskírteinis MA, VMA eða HA. Miða er hægt að panta í síma 857 5598 eða hér á heimasíðunni undir flipanum: “Panta miða”.
Á Kistan.is hefur nú birst leikdómur um Bannað börnum. Þar stendur m.a.:
“í Bannað börnum tekst höfundum alveg snilldarvel að tengja gamaldags heim hjátrúar og þjóðsagna við heim nútímamannsins.”
“Texti verksins er mjög fyndinn, bæði hvað varðar heilu atriðin en ekki síður afar húmoríska punkta í miðri dramatíkinni.”
“Leikritið sjálft er alveg fantagott og ekki er ólíklegt að leikararnir sjóist í rullunni þegar fyrstu sýningum er lokið.”

Hægt er að lesa leikdóminn í heild sinni á Kistan.is

 

Bannað börnum – Myndir

Æfingar standa nú yfir á verkinu Bannað börnum, eins og áður hefur komið fram. Ljósmyndari Freyvangsleikhússins skellti sér á æfingu og smellti af nokkrum myndum. Þær má sjá á Flickr síðu Freyvangs en á hana má komast hér hægra megin á síðunni. Eins og sjá má á myndunum er óhætt að lofa góðri kvöldstund í Freyvangi. Frumsýning er 30 september næstkomandi.

Bannað börnum frumsýnt 30. september

Vínglas á hlið, vínið lekur eins og blóð og myndar orðin Bannað börnum
Erótísk hryllingskómedía

Fimmtudaginn 30. september verður erótíska hryllingskómedían Bannað börnum frumsýnd í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit. Bannað börnum sem er leikrit í fullri lengd er nýjasta viðbótin í “Haustverkefni Freyvangsleikhússins” sem hleypt var af stokkunum síðasta haust með uppsetningu á Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur.

 

Bannað börnum er frumsamið gamanverk eftir fjóra meðlimi Freyvangsleikhússins, þá Daníel Frey Jónsson, Hjálmar Arinbjarnarson, Karl Pálsson og Sverri Friðriksson en Daníel leikstýrir jafnframt sýningunni. Verkið var samið núna í sumar og byggir á íslenskum þjóðsögum um álfa og uppvakninga þó það gerist í nútímanum.

Ungur maður hefur komist á snoðir um undarleg mannshvörf og tengir þau yfirnáttúrulegum verum sem hafa aðsetur sitt á drungalegri krá sem ber nafnið Huldusteinn. Tilraunir hans til að upplýsa málið leiða áhorfendur á spor galdra, óvætta, holdsins fýsna, mannsfórna og jafnvel kölska sjálfs. Að lokum stendur ungi maðurinn, ásamt áhorfendum, frammi fyrir spurningunni um það hver sé góður og hver illur eða hvort “hið góða” og “hið illa” sé yfirhöfuð til.

Haustverkefni Freyvangsleikhússins er átak sem hrint var af stað haustið 2009 í þeim tilgangi að gefa meðlimum Freyvangsleikhússins tækifæri til að fást við sem flestar hliðar leiklistarstarfsemi; skriftir, leikstjórn, sviðshönnun, ljósahönnun o.s.frv. og opna tækifæri til að setja upp sýningar sem eru annars eðlis en aðalverkefni félagsins sem er stór sýning sem sett er upp eftir áramót.

2. sýning verður föstudaginn 1. október. Miða verður von bráðar hægt að panta hér á síðunni undir flipanum: Panta miða og einnig verður hægt að nálgast miða í síma: 857 5598. Miðaverð 2.000,- kr en 1.500,- kr gegn framvísun skólaskírteinis VMA, MA eða HA.