
Nú höfum við hætt sýningum á Svejk. Við þökkum öllum sem komu að sjá sýninguna. Sjáumst hress í haust!
Eftirfarandi gagnrýni á Svejk birtist í Vikudegi fimmtudaginn þriðja mars.
Svejk svíkur engann!
Síðastliðinn föstudag frumsýndi Freyvangsleikhúsið Góða dátann Svejk eftir Tékkann Jaroslav Hasek í leikgerð Írans Colin Teevan. Sýningin hófst í anda aðalpersónunnar með ótrúlegu óhappi því flugvél sem átti að flytja tónlistarstjórann, eina aðalsprautu sýningarinnar, Hermann Inga Arason norður bilaði fyrirvaralaust svo frumsýningargestir máttu anda djúpt og bíða rólegir í nærri klukkustund þangað til sýningin gæti hafist. Það hljómar að sjálfsögðu klisjukennt að halda því fram að fall sé fararheill en það átti svo sannarlega við í þessu tilfelli.
Sagan af góða dátanum Svejk er mörgum þekkt en líklega eru þeir sem hafa heyrt eða lesið þetta frábæra verk svo ekki sé nú talað um þá sem hafa séð aðra leikgerð upp úr sögunni eða kvikmyndina komnir á miðjan aldur og þaðan af eldri. Það er því örugglega kominn tími til að kynna óbreytta dátann Svejk fyrir nýrri eða nýjum kynslóðum.
Svejk er ungur maður í Prag, sumir gætu sagt auðnuleysingi, sem fyrir röð tilviljana, lendir í þjónustu lautinants að nafni Lúkas sem „eignaðist“ okkar mann í spilum. Svejk hefur lag á því að koma geði fólks á hreyfingu og Lúkas er þar engin undantekning. Leikritið snýst að stórum hluta um samskipti Svejks og Lúkasar og eru margar senur með leik þeirra tveggja hreint óborganlegar. Góði dátinn Svejk verður ekki settur í einhverja eina skúffu en óneitanlega eru ævintýri hins óbreytta hermanns oft ótrúlega fyndin en um leið harmræn. Með sakleysislegum athugasemdum kallar Svejk oftar en ekki fram yfirgengileg viðbrögð samferðarmanna sinna og þá er erfitt að sjá hvort er verra heimskan eða hrokinn.
Brynjar Gauti Schiöth, sem leikur Svejk, stendur sig frábærlega vel og er að öllu leyti trúverðugur sem hin einfaldi en athuguli samfélagsrýnir í miðri styrjöld sem á sínum tíma var kölluð móðir allra styrjalda. Þó verður það að segjast að það er Ingólfur Þórsson sem vinnur virkilegan leiksigur í þessu verki. Hann gæti staðið á sviði hvaða leikhúss sem er og sómt sér vel. Svipaða sögu er reyndar að segja um allan hópinn því að leikstjórinn, Þór Tulinius, nær að skapa heildstæða sýningu þar sem texti, leikmynd, búningar, leikhljóð, hraði og skiptingar eru eins og best verður á kosið. Í tónlistinni má ekki gleyma framlagi áðurnefnds Hermanns Arasonar og félaga og textum Emilíu Baldursdóttur sem eru afbragðs góðir. Guðjón Ólafsson tók að sér að snúa leikgerðinni á íslensku og hefur það tekist með miklum sóma.
Hér væri hægt að halda áfram langri upptalningu því að rúmlega tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og þá er ótalinn þáttur þeirra þrjátíu sem lögðu með öðrum hætti lóð sitt á vogarskálar Thalíu til að gera þessa mettnaðarfullu sýningu að veruleika.
Ágúst Þór Árnason
Leikfélaginu hefur borist bréf. Eftirfarandi er innihald þess:
Þessi sýning var fagnaðarefni. Hún var kraftaverk af hendi leikstjóra og allra sem að henni standa. Í mínum huga gekk allt upp, frábær leikmynd og búningar, leikmunir réttir og sannir og umgjörðin öll til fyrirmyndar. Leikarar stóðu sig með stakri prýði og margir framúrskarandi.
Sýningin ber öll vott um öguð vinnubrögð, kraft og einlægni þeirra sem að henni koma.
Húrra – Bravó fyrir Freyvangsleikhúsinu.
Þráinn Karlsson, leikari.
Við þökkum góð orð í okkar garð.
Föstudagur 18. mars kl. 20:00 7. sýning. Örfá sæti laus.
Laugardagur 19. mars kl. 16:00 8. sýning. Uppselt!
Laugardagur 19. mars kl. 20:00 9. sýning. Laus sæti.
Föstudagur 25. mars kl. 20:00 10. sýning. Laus sæti.
Laugardagur 26. mars kl. 20:00 11. sýning. Laus sæti.
Þetta sýningaplan er gefið út með fyrirvara um breytingar.
Jæja, þá er loksins komið að því! Leikritið Góði Dátinn Svejk verður frumsýnt næstkomandi föstudag kl. 20:00. Önnur sýning er á laugardaginn kl. 20:00. Við minnum á miðasölusímann: 857-5598 og einnig möguleikann á því að panta miða hér á síðunni. Það er gert undir flipanum “panta miða” hér fyrir ofan.

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Vegna óviðráðanlegra orsaka verðum við því miður að fresta frumsýningunni á Góða Dátanum Svejk um eina viku. Í stað þess að frumsýna 19. febrúar munum við frumsýna föstudaginn 25. febrúar kl. 20:00.
2. sýning verður laugardagskvöldið 26. febrúar.
Okkur þykir það miður að þurfa að fresta sýningunni og biðjumst við velvirðingar á því.

Nú styttist í frumsýningardag. Fljótlega koma hér inn á síðuna upplýsingar um sýningar, óhætt er þó að segja að sýningin verði sýnd flest föstudags og laugardagskvöld kl. 20:00 fram á vor.Það er hægt að panta miða hér að ofan þar sem stendur “panta miða”. Einnig er hægt að hringja í miðasölusíminn, 857-5598, frá og með miðvikudeginum 16. febrúar. Síminn verður opinn alla virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 10:00.
Hér til hliðar er hægt að fara inn á Flickr síðu okkar og sjá nokkrar myndir frá æfingum. Einnig viljum við minna á Facebook síðu okkar en tengill á hana er líka hér til hægri undir “tenglar”.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

Stjórn Freyvangsleikhússins vill óska meðlimum sínum, vinum og velunnurum gleðilegs nýs árs með kærum þökkum fyrir árið sem nú er við það að kveðja.
Við þökkum frábærar móttökur á árinu og vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á uppsetningu okkar á Góða dátanum Svejk sem verður frumsýnt í febrúar á nýju ári. Lifið heil.