Dásamlegar Dagatalsdömur gleðja…..og gleðja.

Hið kraftmikla Freyvangsleikhús frumsýndi leikverkið Dagatalsdömurnar eftir Tim Firth í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. Þann 1. febrúar s.l.

Leikritið er tileinkað ötulum félaga úr Freyvangsleikhúsinu, Hjördísi Pálmadóttur sem lést úr krabbameini 2011. Öll laun fyrir höfunda og sýningarrétt renna óskert til rannsókna á sjúkdómnum og einnig hefur Freyvangsleikhúsið ákveðið að gera enn betur og ánafna Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis hluta af miðasölu og hluta af sölu fallegs dagatals sem hefur verið gefið út.

Dagatalsdömurnar er frásögn af sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í uppsveitum Englands rétt fyrir aldamótin. Krabbamein er sjúkdómur sem dregur fleiri til dauða en nokkuð annað. Krabbamein er alls staðar og það geta allir fengið það. Að missa ástvin úr krabbameini er hræðileg upplifun. Á svoleiðis stundum er gott að eiga góða vini, sem skilja mann og vita hvað þarf að gera til að hjálpa. Það er þörf upplifun fyrir landsmenn að skreppa í Freyvang og sjá hvernig alvöru ástvinir fórnarlambs krabbameins, heiðra minningu þess sem lést og létta sína eigin lund í leiðinni. Leikritið var valið besta gamanleikritið í Englandi árið 2010.

Leikarar í “Dagatalsdömunum” eru hæfileg blanda af blanda af reynsluboltum og nýju hæfileikaríku fólki. Það er alveg ljóst að leikstjórinn Sigrún Valbergsdóttir hefur unnið mikla og góða vinnu og náð afar vel til leikaranna. Flestar senurnar einhvern veginn svo réttar og hárfínar, jafnt gleði sem sorgarstundirnar. Ég er nokkuð viss um að æfingatímabilið hefur verið skemmtilegt og gefandi og mig grunar að margt sem hefur “óvart” gerst á æfingum hefur verið notað að lokum. Gleðin og einlægnin skilar sér fram í sal og með áhorfendum út í nóttina. Prik til leikstjórans.

Leikhópurinn er samrýmdur og fallegu kvenfélagskonurnar ná vel saman og treysta hver annari og leika allar mjög vel. Ég verð samt að minnast á eina eða tvær. Inga María Ellertsdóttir fer á kostum í hlutverki Kristínar, hún nær vel til áhorfendanna og nýtur þess sem hún er að gera. Linda Guðmundsdóttir í hlutverki Dóru er traust og hrífandi. Stefán Guðlaugsson sem leikur Robba manninn hennar Kristínar er frábær leikari og hrikalega fyndinn, Ingólfur Þórsson, Sigríður Jóna Pálsdóttir og Haukur Guðjónsson eru líka eftirminnileg , Sigríður skondin sem Berta Höskulds, Ingólfur er góður sem Jón Karlsson sérstaklega þegar líður á veikindin, Haukur ljáir Lárusi ljósmyndara skemmtilegan karakter.

Það örlaði á smá frumsýningarhökti en varla til að minnast á, þetta er eitthvað sem slípast til á einni til tveimur sýningum. Eftir hlé fannst mér koma smá kafli þar sem að dampurinn datt aðeins niður, hvort að það skrifast á verkið sjálft þar sem að það er kannski aðeins of langt eftir hlé eða á frumsýninguna er ekki gott að segja. Þetta er stuttur kafli og mér sýndist nú á áhorfendum að hefði ekki mikil áhrif.


Lýsingin er fagmannlega gerð og skilar sínu hlutverki, það sama má segja um hljóðmynd og búninga (Þegar þeir eiga við) . Leikmyndin er einföld og margt vel gert eins og t.d. blómin á hólnum og fleira. Ég ætla líka að minnast á aðra umgjörð, auglýsingar, leikskrá, starfsfólk í móttöku, markaðsmál og fleira er til fyrirmyndar og allir að vinna með hjartanu fyrir leikfélagið sitt.
Það var mikið hlegið og klappað á frumsýningunni og eflaust sáust líka tár á hvarmi. Þetta er sýning sem ég mæli kinnroðalaust með og þeir sem vilja hlæja og hlæja meira eiga ekki að hugsa sig tvisvar um. Sýningin styrkir gott málefni, andann, hjartað og eflir blóðflæðið. Nú ætla ég ekki að uppljóstra miklu sem ber fyrir augu í þessari skemmtilegu sýningu en eitt get ég fullyrt að það er fallegt og þið skuluð ekki missa af því.

Til hamingju allir aðstandendur.
Júlíus Júlíusson.

Dagatalsdömurnar.

Krabbamein er sjúkdómur sem dregur fleiri til dauða en nokkuð annað.  Krabbamein spyr ekki um landamæri, það spyr ekki um húðlit, það spyr ekki um kyn og það spyr ekki um trúarbrögð.  Krabbamein er alls staðar og það geta allir fengið það.  Að missa ástvin úr krabbameini er hræðileg upplifun getur oft tekið langan tíma fyrir þann sem lifir að ná áttum á nýjan leik.  Á svoleiðis stundum er gott að eiga góða vini, sem skilja mann og vita hvað þarf að gera til að hjálpa.

Dagatalsdömurnar er frásögn af sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í uppsveitum Englands rétt fyrir aldamótin.  Um þessa sögu var skrifað handrit að bíómynd og seinna handrit að leikriti.  Það leikrit var, árið 2010, valið besti gamaleikur á Englandi og nú hefur Freyvangsleikhúsið keypt sýningarréttinn og mun sýna á stóra sviðinu í Freyvangi næstu vikurnar.  Það er þörf upplifun fyrir landsmenn að skreppa í Freyvang og sjá hvernig alvöru ástvinir fórnarlambs krabbameins, heiðra minningu þess sem lést og létta sína eigin lund í leiðinni.  Höfundur verksins er Tim Firth, íslensk þýðing er eftir Davíð Þór Jónsson og leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.

dagatalsdomurnar_01[1]

Frumsýning á Dagatalsdömunum verður í Freyvangi föstudagskvöldið 1. febrúar og önnur sýning sunnudagskvöldið 3. febrúar.  Síðan er stefnt á sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld, eins lengi og aðsókn leyfir.  Miðaverð er 3000 kr. og miðapantanir eru í síma 8575598 og á freyvangur.net.  Hluti af miðaverði rennur til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Dagatalsdömurnar

Dagatalsdömurnar, eftir Tim Firth, í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur, verða frumsýndar föstudagskvöldið 1. febrúar kl. 20:00.  Uppselt er á þá sýningu.  Önnur sýning er sunnudaginn 3. febrúar kl. 20:00 og er örfá sæti laus.  Á síðunni hér til hægri má sjá lista yfir sýningar.  Miðapantanir eru hér á síðunni og í síma 8575598.

Dagatalsdömurnar.

Dagatalsdömurnar, grafalvarlegur gamanleikur eftir Tim Firth, í íslenskri þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar verður frumsýndur föstudagskvöldið 1. febrúar n.k.  Leikritið sem er sett upp í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis byggir á sönnum atburðum og er um frumsýningu að ræða hér á Íslandi.  Leikstjóri er Sigrún  Valbergsdóttir, leikmynd hannaði Þorsteinn Gíslason, búninga hannaði Beate Stormö, ljósahönnun er í höndum Benedikts Axelssonar og frumsamin tónlist er eftir Jóhann Axel Ingólfsson.  Hægt er að kaupa miða í forsölu í Eymundsson Akureyri og kostar miðinn þar 2500 kr.dagatalsdomurnar_01[1]

Á myndinni má sjá hinar eldhressu íslensku dagatalsdömur, á sviðinu í Freyvangi.  Myndina tók Gunnlaug E. Friðriksdóttir.

Dagatalsdömurnar.

Gamanleikurinn Dagatalsdömurnar (Calendar Girls) eftir Tim Firth verður síðasta verkefni Freyvangsleikhússins á þessu leikári.  Æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun nóvember, en leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir.  Leikritið byggir á sönnum atburðum og samnefnd bíómynd var sýnd í kvikmyndahúsum fyrir nokkrum árum.  Þess má geta að hluti af hagnaði af miðasölu og af sölu á dagatali mun renna til Krabbameinsfélags Akureyrar.Dömudagatalið

Jólahlaðborð í Freyvangi

Hinn árlegi kabarett Freyvangsleikhússins, sem að þessu sinni heitir “Jólahlaðborð”, verður sýndur í Freyvangi föstudagskvöldið 30. nóvember kl. 20:30 og laugardagskvöldið 1. desember kl. 21:30.    Á föstudagskvöldið verður boðið upp léttar veitingar, en á laugardagskvöldið verður hefðbundinn kabarett, sem lýkur með dansleik.  Þessi árlega skemmtun hefur markað sér sess í menningarlífi Eyfirðinga og óhætt að hvetja fólk til þess að fjölmenna í Freyvang.

Skilaboðaskjóðan.

Nú eru aðeins fjórar sýningar eftir og hver að verða síðastur að sjá þessa skemmtilegu sýningu.

 

Laugardaginn 24. nóvember kl 14:00

Laugardaginn 24. nóvember kl 17:00 (aukasýning)

Sunnudaginn 25. nóvember kl. 14:00

Sunnudaginn 25. nóvember kl. 17:00 (aukasýning – allra síðasta sýning)

Miðapantanir í síma 8575598 og á freyvangur.net.  Einnig er hægt að kaupa miða í Eymundson.

Sýning á Skilaboðaskjóðunni fellur niður!

Vegna veðurs og ófærðar hefur sýning á Skilaboðaskjóðunni sem vera átti laugardaginn 3. nóvember kl. 14:00 verið felld niður.  Við biðjum aðdáendur okkar afsökunar á þessu, en við ráðum ekki yfir veðrinu og viljum ekki tefla heilsu áhorfenda okkar í tvísýnu.  Sýning á sunnudag kl. 14:00 er enn á áætlun, en það er uppselt á hana.  Sýningar eru fyrirhugaðar alla laugardaga og sunnudaga í nóvember og hægt er að panta miða í síma 8575598 og á freyvangur.net.

Þá skal þess og getið að fyrirhugaður samlestur á Dagatalsdömum sem átti að vera í kvöld, færist fram á sunnudag kl 17:00.