Kæru vinir.
Því miður sjáum við okkur ekki annað fært en að fella niður sýninguna, sem átti að vera kl. 14 í dag, vegna veðurs.
Það eru mörg börn og ungmenni sem leika í sýningunni okkar, ásamt því að stærstur hluti áhorfenda okkar eru börn. Við hjá Freyvangsleikhúsinu viljum ekki taka neinar áhættur með að fólk sitji fast í kuldanum með krakkana, svo að það verður ekki sýning í dag.
Við mælum frekar með því að fólk nýti daginn í að liggja undir teppi með heitt kakó og bíða eftir jólunum.
Haft verður samband við alla þá sem áttu pantaða miða í dag og þeim boðið að koma á morgun í staðinn.
Endilega hafið samband við miðasölu í síma 857-5598 fyrir frekari upplýsingar.

er. Þessi samsetning leikhópsins er e.t.v. lýsandi fyrir starfsemi Freyvangsleikhússins sem hefur haldið dampi lengur og betur en flest áhugafélög, verið listrænn farvegur fyrir bæði reynslubolta og byrjendur á leiksviði og sett upp hverja metnaðarfullu leiksýninguna á fætur annari. Freyvangsleikhúsið vílar ekki fyrir sér að ráðast í gríðarlega metnaðarfull verkefni og hefur m.a. oftlega séð Norðlendingum fyrir barna- og fjölskylduleikhúsi sem tilfinnanlega hefur skort í leikhúslíf Akureyrar.









